Psalms 88

1Ljóð. Kóraíta-sálmur. Til söngstjórans. Syngist með Makalat-lagi. Hemans-maskíl Esraíta. 2Drottinn, Guð minn, ég kalla um daga, um nætur hrópa ég frammi fyrir þér. 3Lát bæn mína koma fyrir þig, hneig eyra að hrópi mínu, 4því að sál mín er mett orðin af böli, og líf mitt nálægist Hel. 5Ég er talinn með þeim, sem gengnir eru til grafar, ég er sem magnþrota maður. 6Mér er fenginn bústaður með framliðnum, eins og vegnum mönnum, er liggja í gröfinni, er þú minnist eigi framar, því að þeir eru hrifnir burt úr hendi þinni. 7Þú hefir lagt mig í gryfju undirheima, í myrkrið niðri í djúpinu. 8Reiði þín hvílir á mér, og alla boða þína hefir þú látið skella á mér. [Sela] 9Þú hefir fjarlægt frá mér kunningja mína, gjört mig að andstyggð í augum þeirra. Ég er byrgður inni og kemst ekki út, 10augu mín eru döpruð af eymd. Ég ákalla þig, Drottinn, dag hvern, breiði út hendurnar í móti þér. 11Gjörir þú furðuverk vegna framliðinna, eða munu hinir dauðu rísa upp til þess að lofa þig? [Sela] 12Er sagt frá miskunn þinni í gröfinni, frá trúfesti þinni í undirdjúpunum? 13Eru furðuverk þín kunngjörð í myrkrinu eða réttlæti þitt í landi gleymskunnar? 14En ég hrópa til þín, Drottinn, og á morgnana kemur bæn mín fyrir þig. 15Hví útskúfar þú, Drottinn, sálu minni, hylur auglit þitt fyrir mér? 16Ég er hrjáður og aðþrengdur frá æsku, ég ber skelfingar þínar og er ráðþrota. 17Reiðiblossar þínir ganga yfir mig, ógnir þínar eyða mér. 18Þær umkringja mig eins og vötn allan liðlangan daginn, lykja um mig allar saman. [ (Psalms 88:19) Þú hefir fjarlægt frá mér ástvini og félaga og gjört myrkrið að kunningja mínum. ]
Copyright information for Icelandic